Barnlaus.....Ægir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir

Já núna er litli strákurinn minn kominn hinu megin á landið til ömmu sinnar og afa í Fellabænum. Við skutlauðum honum og tengdapabba á flugvöllin síðasta sunnudag. Ég hef bara aldrei upplifað neitt eins erfitt og að kveðja hann þarna á flugvellinum. Heiðar var samt voðalega kátur kyssti okkur bless og veifaði, bara spentur að komast í flugvélina. Hann er svo mikið yndi þessi elska. Síðustu daga höfum við bara verið hálf eirðarlaus vitum ekkertr hvað við eigum af okkur að gera fyrst að við höfum ekki heiðar til að leika við hehe :) Dagurinn í dag fór reindar í algjöra leti, það var sofið framm að hádegi í fyrstaskipti í langan tíma og svo tekin smá rúntur um bæjinn til að sjá 17 júní gleðina. Svo var bara farið heim og chillað. Begga, simbi og Tanja krútt kíktu svo aðeins á okkur. Bökuðum okkur svo geggjað góða pizzu og fórum svo í kvöldgöngu til að brenna aftur pitzuni sem við borðuðum hehe.
En já núna erum við bara að telja niður dagana til að komast í sumarfrí og þá verður brunað beint austur að hitta litla prinsinn okkar. Get ekki beðið
en nóg i bili kveðja Jara
p.s ég bít ekki þó að fók kommenti :)

Ægir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir

jæja nýja síðan var ekki alveg að virka og ég ekki alveg að tíma að borga fyrir þetta. Ég var eiginlega bara ákveðinn að hætta bara allri blogg vitleisu, en hérna er ég víst að blogga hehe. En já það er alltaf það sama hjá okkur. Tengdapabbi er hjá okkur þessa dagana að passa. Dagmamman kominn í sumarfrí og svo er drengurinn bara orðin svo stór að hann er að fara að byrja í leikskóla í ágúst. Úff þetta er svo fljótt að líða! Við Ægir vorum bæði í óvissuferð um helgina, hann með byko og ég með leikskólanum. Það var geðveikt gaman :) Við fórum og gáfum öndonum brauð við ráðhúsið og munaði litlu að sumir dittu út í tjörnina og svo fórum nokkrar :) í keppni hver gæti hitt í flesta hausa. (ekki bara á fuglonum) hehe. Við fórum svo og lærðum lapdance sem var bara sild og mikið hleigið og fórum svo á kynningu í adam og evu:) Svo var farið að borða á kaffi viktor. Þessi ferð var bara algjor snild.
Svo er mín bara byrjuð í skóla í leikskólaliða námi. Þetta verða 4 lotur en bara dagskóli a sumrinn svo að maður geti unnið með um veturinn. Ég fer í fyrsta tímann minn á föstudaginn og ég er bara geggjað spent :) Er loksins að fara að læra eitthvað og veða eitthvað :)
En læt þetta duga í bili nenni ekki meira bulli :)
kveðja Jara

Ný síðaÆgir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir

ja er kominn með nýja heimasíð þar sem að ég ættla að reyna að era duglegri við að bloga og setja inn myndir, það er svo leiðinlegt að koma inn myndum á þessa síðu e slóðinn er  http://www.123.is/jara/ svo endilega kíkið við og kvittið :D en síðan er algjörlega á byrjunarstigi en er í vinslu :D
kveðja Jara

blebleÆgir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir

Ég held að það sé sko löngu komin tími á nýtt blogg. Það hefur verið pínu bloggleti í gangi síðustu daga. En já jólinn og áramótin eru búin og voru þau alveg ljómandi góð :D En verð samt að viðurkenna að maður saknaði fjölskyldunar rosalega mikið, þó að það hafi verið rosalgega nmotalegt að vera bara 3, þá fann maður samt fyrir því að það vantaði fjölskylduna.
Þann 10 janúar síðastliðin lést elsku Bedda amma á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum, hún var búin að vera mikið veik undanfarið, en ég er svo glöð að hún komst heim í íbúðina sína í nokkra daga um jólinn, ég veit að það gladdi hana mikið. Ég man altaf eftir því þegar að hún kendi mér að prjóna húfu þegar að ég var lítill, ég var í pössun hjá henni í heilan dag og hún tók sér allan dagin í að kenna mér að próna litla húfu á dúkkuna mína, það hefur án efa urft mikkla þolinmæði í að kenna mér þetta þar sém að ég er algjör klaufi að prjóna en með hjálp ömmu tókst mér að klára hana áður en pabbi kom og sótti mig. :D Ég man hvað ég var rosalega stolt af sjálfri mér fyrir að hafa prjónað heila húfu, þó svo að hún væri pínu lítill hehe :D Hún amma var sko alveg yndisleg og hún mun ávalt vera í hjörtum okkar.

Ég skráði mig í átaks keppni í Lífsstíl núna um daginn svo að núna er maður alltaf í ræktini :) Maður var allur mældur og viktaður og taknar myndir af manni í byrjun og svo verður maður mældur fjórum sinnum á tímabylinu svo að það er vissara að standa sig. Það skemmir líka ekki fyrir að í fyrstu verðlaun eru 50 000 krónur í peningum og fleira dót að verðmæti 50 000 kr :D

en ættli ég láti þetta ekki gott heita í bili það er allt við sinn vanagang á þessum bæ, en já gleymdi einu hann Heiðar Árni er farinn að LABBA og það sko á fullu og út um allt. það er ekkert óhult fyrir honum lengur hehe.
en þetta er orðin nóg mas í bili
kveðja Jara

bráðum koma blessuð jólinÆgir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir

já það eru aðeins tveir dagar til jóla og ég loksins búin að gera allt, eða næstum á eftir að fara með tvö jólakort, en því verður reddað á morgun :DÉg var svo glöð þegar að ég sá snjókomuna áðan. Loksins smá jólasnjór. :) I'm so happy
Ég er bara ekki frá því að ég sé kominn í svolítið jólaskap. Við erum búin að vera að skreita og taka til hjá okkur í dag og er bara allt að verða tilbúið fyrir jólin:) Skreittum jólatréið okkar í gær, ég bjóst við að þurfa setja girðingu í kringum það útaf Heiðari en hann hefur voðalega lítin áhuga á tréinu. En ketlingarnir aftur á móti elska tréið. Fann tvo í dag INNÍ  miðju tréinu, þá voru þeir búnir að klifra upp það og festa sig það hehe svo sofa þeir alltaf þar allir þrúr með perlu ekkert smá mikið krútt hehe :)
En hef svosum ekkert mikið að segja af okkur er allt gott að frétta. Heiðar stækkar og stækkar og er orðin 80 cm og tæp 12 kíló! stór strákur sem við eigum :) Hann er farinn að segja mamma voðalega skýrt og svo kis kis þegar hann sér kisu. hann ELSKAR perli og ketlingana og svo er hann eiginlega líka farin að segja takk og datt en það hljómar alveg eins hjá honum.
en hef þetta ekki lengra í bili
Vil bara enda á því að óska öllum glegilegra jóla og takk fyrir gamala árið hafið það sem allra best um hátiðarnar
kveðja Jara

fyrsti í aðventuÆgir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir

Vá það er bara komin fyrsti í aðventu í dag. Tíminn bara flýgur áfram og það eru alveg að koma jól, eftir 22 daga :) Þessi vika er bara búin að vera ágæt. Ég þurfti að sækja Heiðar  til dagmömmunar á miðvikudaginn því að hann var komin með svo mikkla augnsýkingu litla greyjið. Ég fór svo með hann til læknis og fékk augndropa fyrir hann, ég var EKKI 5 mínótur inni hjá lækninu, hann sá strax að hann var með sýkingu og lét mig hafa lifseðil og þurfi að borga rúmar 1500 krónur, bara fyrir að láta læknirin segja mér að hann væri með augnsýkingu sem að ég vissi og láta mig hafa lifseðil. Ég er samt ekkert smá fegin að tryggingarstofnunin borgar niður læknisheimsóknina því að heildar verðið var rúmar 5000 krónur fyrir 3 minótur! Við vorum svo bara að dúlla okkur heima á fimmtudaginn þar sem að Heiðar mátti ekki fara til dagmömmunar.  
Svo núna á föstudagskvöldið var jólaparty hjá starfsfólkinu í vinnuni. Það var algjört stuð, fórum í alskonar leiki og var nafnið mitt alltaf dregið. Ég fékk svo það hlutverk að leika veiðimannin í rauphettu og úlfinum og gera ig að algjöru fífli en það var bara gaman hehe
Svo var jólahlaðborð hjá vinnuni hans Ægirs í gær svo við heiðar hofðum það bara voðalega gott og kúrðum í sófanum og horfðum á sjónvarpið.

En ég vil svo enda á því að votta fjölskyldi litla drengsins sem keyrt var á alla mína samúð ég get ekki ýmindað mér hvað þetta hlítur að vera erfitt fyrir þau. Maður fékk alveg sting í hjartað þegar að meður heyrði fréttina. Ég vona svo innilega að maðurinn náist sem að ók á barnið. Ég skil ekki hvernig nokkur maður getur haft það í sér að keyrra á barn og keyra svo í burtu. Löggan er mað einhvern útlending í varðhaldi núna sem var á bíl sem að passar við lýsinguna og bíllin einmitt eitthvað dældur. Ég vona að mótmælin hjá íbúum á vesturgötuni eigi eftir að skila einhverjum árangri og að það komi risastórar hraðahindranir. Það er bara alveg fáranlegt að það virðist alltaf þurfa að gerast eitthvað slys áður en að eitthvað er gert í hlutonum. Það hefur löngum verið vitað að þessi gata er stórhættuleg.

Ég ættla ekki að hafa þetta lengra í bili kveðja Jara 

Helgin á enda...Ægir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir

Jæja þá er kominn sunnudagur og helgin brátt að enda. Hún var alltof fljót að líða. Helgin var bara tekin í rólegheitum. Fór í ræktina á laugadagsmorgunin sem að var bara ansi hressandi. svo vorum við Heiðar bara að dúlla okkur heima á meðan Ægir var að horfa á fótboltaleik. Við ættluðum svo að vera ótrúlega góð og leifa Heiðari að gefa fuglonum brauð hérna við tjörnina seinipartin, fórum niðrá tjörn en stoppuðum svo ekki lengur e 5 mínótur því það var svo ÓGEÐSLEGA kalt. Heiðari fanst samt mjög gaman í þessar 5 mínótur sem að við stoppuðum. Það er alveg ótrúlegt að sjá hvað fuglarnir eru ekkert hræddir við mann eru nánast alveg við lappirnar á manni. Það liggur samt við að maður verði hræddur við þá, því að þeir eru ekkert smá stórir.þetta er að mestu leiti svanir og þeir voru að ná manni alveg upp að mitti, ef að þeir hefðu teigt úr hálsinum hefðu þeir öruglega ekkert verið neitt minni en égÓákveðinn En svo vorum við skötuhjúin bara komin uppí rúm fyrir klukkan 11 í gærkvöldi, já á laugardagskveldi. Kúrðu bara uppí rúmi og höfðum það rosalega gott að horfa á house :)
En kanski að maður reini að láta verða eitthvað meira úr deginum í dag:)
kveðja Jara

17 nóvemberÆgir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir

Já alltaf styttist í blessuð jólin það eru ekki mema 37 dagar til jóla. og tæplega mánuður þangað til að litli kúturinn okkar verður 1 árs :D
Annars er bara allt gott að frétta á þessum bæ ekkibúið að vera mikið að gerast.
En haldiði ekki bara að mín hafi ekki farið og keift sér kort í ræktina á mánudaginn. Enda löngu komin tími til, en ég er búin að vera bara nokkuð dugleg fór á mánudag, þriðjudag, miðvikudaginn og fimtudaginn en fór ekki í gær því það er ekki barnapössun á föstudögum. Já ég ákvað að drýfa mig bara af stað í ræktina og hætta að hugsa um að ég líti ut eins og auli á hlaupabrettinu með ekkert þol, reini bara að horfa ekkert á fólkið í kringum mig og er hætt að spá í hvað öðrum finst. Hef alltaf verið með alltof mikklar áhyggjur af því hvað öðrum mindi finnast, en nenni því sko ekki lengur og ættla bara að vera ég sjálf :D
Ég fór svo út með Selju og Beggu í gærkvöldi og það var alveg æðislega gaman, takk fyrir kvöldið stelpur. Við byrjuðum á því að fara heim til Beggu og fá okkur nokkra öllara þar og röltum svo á h.inn þar sem að við görsamlega dönsuðum af okkur rassin held ég hehe :)  Set in nokkrar myndir hérna við tækifæri en nú held ég að það sé best að fara að hætta þessari þvinku og fara að geraeitthvað gáfulegt:D
kveðja Jara

Halló, halló, halló....Ægir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir

já góðan og blessaðan dagin fólk. Vá ég snéri mér næstum úr hálsliðnum í dag þegar að ég keirði fram hjá ob bensínstöðinni og sá að bensínið var komið uppí 130 krónur. Ég hélt að þetta hliti eð vara einhver mistök en þá fór ég fram hjá atlantsolíu og þar stóð þetta líka 130 krónur. Þetta er nottlega bara geðveiki!!!! og svo tekur ríkið 67 krónur af hverju lítra. Rúmlega helmingin!!!!! Þetta gerir mig bara pirraða og reiða. Er ekki komin tími á að Íslendingar fari að standa saman og gera eitthvað í þessum málum og hætti að láta taka sig svona í rasgatið!Öskrandi  Jú jú auðvitað vil ég´eins og aðrir fá betri vegi og betri aðstöðu á sjúkrahúsum og svona en þetta er bara einum og mikið af því góða finst mér!!

En já svo að ég hætti nú að kvarta og að einhverju öðru þá er bara allt gott að frétta af okkur, allt gengur sinn vanagang. Ég fór á árshátið Hjallastenfunar síðustu helgi á hótel hilton nordica sem að var alveg rosalega gaman, mjög flottur matur . En þegar að hljómsveitin byrjaði að spila dó stemningin algörlega. Það var hún Magga Stína og hringirnir eða e-d álíka sem að spiluðu fyrir dansi eða þessum nokkru hræðum sem að dönsuðu. Hún var svo beðin um að hraða takktin aðeins en held að það hafi farið eitthvað í hana því að hún hægði bara á og þá fór allt fólkið að tínast framm á bar. En þar heyrðist enþá of mikið í henni þar svo að við færðum okkur bara á barinn framm í lobbíji svo að við þirftum ekki að hlusta á þetta leiðinlega gaul í henni. En það var bara stuð frammi á bar og voru bara allir í þvi að raða ofaní sig tópas skotonum þetta kvöld:D Rútan kom svo klukkutíma fyrr en ættlunin var því allir voru svo leiðir á hljómsveitini.
Á sunnudaginn var svo bara vaknað snemma og farið í búðaferð í bæjinn fórum í ikea, rúmfó , stóru dóta búðina og smáralind og keiptum nokkrar jólagjafir.
Já gott fólk það stittist í jólin það eru ekki neme 44 dagar til jóla ;D

´jæja þetta er nú orðið heldur langt blogg svo að ég ættla að hætta þessari vitleisu.
kv Jara

Snjór.....Ægir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir

já það er bara allt orðið hvítt hérna. Ég ættlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar að ég vaknaði í morgun, en það er búið að vera samt glampndi sól og rosalega flott veður. Við ákváðum að taka strætóinn niðrí bæ í dag or fara smá hafnargötu rölt sem að var bara mjög fínt. Það var svo svalandi veður eitthvað. Svo tókum við Heiðar strætóinn uppí Akurleikskóla en Ægir varð eftir því að hann var að fara að horfa á fótboltaleik. En ég fór og leifði Heiðari aðeins að róla og leika sér í snjónum og honum fanst það ÆÐI! það var svo gaman að figjast með honum og missti ég mig aðeins með myndavélina. Set nokkrar myndir af krúttinu hérna nn við tækifæri:)

Við Seklja skeltum okkur svo á handboltaleik í fyrrakvöld og það var bara helvíti gaman, fyrir utan það að Ísland tapaði :( En þeir unnu svo leikinn í gær. Við vorum ýkt cool á því og keiptum okkur stóra hatta í íslensku fánalitunum með bjollum á :) En íslenska liðið verður að fara að taka sig ansi mikið á fyrir Evrópumeistara keppnina því að þeir voru ekki að spila vel þessa tvo leiki.

En ég ættla að fara að hætta þessu bulli í bili og fara að gera eitthvap gáfulegt :)
kv Jara

Atburðarteljari

Auglýsing

Atburðarteljari

Hver er ég

Ég heiti Ægir kristinn Sævarsson og Bý í njarðvík með jöru konunni minni og Heiðari árna stráknum mínum ég er að vinna í byko kefl sem er langbesta byko búðin :)

Prófíll

  • Nafn: Ægir Kristinn Sævarsson og Jarþrúður Hólmdís Júlíusdóttir
  • Staður: Egilstaðir
  • Atvinna: Alcoa/skógarland
  • Hjúskaparstaða: trúlofuð

Innskráningar kubbur

Hver er ég

Ég heiti Jarþrúður Hólmdís en er alltaf kölluð Jara. Eg er fædd árð 1986. Ég bý í Njarðvík í litlu sætu íbúðini okkar sem að við keiptum síðasta sumar með æðislega kallinum mínum honum Ægir og litla prinsinum okkar Heiðar Árna sem að fæddist í 15 desemer 2006, dagin fyrir afmælisdaginn minn :) Ég er að vinna á leikskólanum Akur sem að er ný oppnaður og það er alveg frábært að vinna þar:)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Leikur dagsins